Ódysseifskviða 14 - Heim til Íþöku
Hér les umsjónarmaður 13. kafla Ódysseifskviðu. Alkinos konungur Fæeka hjálpa Ódysseifi að komast loksins, loksins heim til Íþöku. Hann er borinn sofandi í land en þá birtist Aþena…
19. september 1939 birtist þýskur kafbátur óforvarandis á ytri höfninni í Reykjavík. Síðari heimsstyrjöldin var þá nýhafin og þýskir kafbátar farnir að láta að sér kveða á hafinu. Það sem Íslendingar vissu ekki þá var að skipverjar einmitt þessa báts höfðu nýlega framið einn fyrsta stríðsglæp stríðs, og kafbátaforinginn átti síðan eftir verða örlagavaldur í stríðinu.

Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.