Ódysseifskviða 14 - Heim til Íþöku
Hér les umsjónarmaður 13. kafla Ódysseifskviðu. Alkinos konungur Fæeka hjálpa Ódysseifi að komast loksins, loksins heim til Íþöku. Hann er borinn sofandi í land en þá birtist Aþena…
Í þessum kafla Ódysseifskviðu greinir enn frá veisluhöldum sem Ódysseifur er viðstaddur í höllu Fæeka. Þar flytur blinda skáldið Demódókus meðal annars heldur blautlegt kvæði um samskipti Aresar stríðsguðs og Afródítu ástargyðju. Spurningin er hvort Demódókus sé í aðra röndina sjálfsmynd skáldsins Hómers. Síðar segir meðal annars frá hinum einkennilegu Lótusætum sem Ódysseifur og menn hans hrekjast til.

Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.