Ódysseifskviða 14 - Heim til Íþöku
Hér les umsjónarmaður 13. kafla Ódysseifskviðu. Alkinos konungur Fæeka hjálpa Ódysseifi að komast loksins, loksins heim til Íþöku. Hann er borinn sofandi í land en þá birtist Aþena…
Kropotkin fursti skrifaði rómaða sjálfsævisögu sem áður hefur verið gluggað í í Frjálsum höndum. Nú er hann kominn á táningsár og farinn að komast í kynni við hirðlífið í hinu feyskna ríki Romanov-keisaraættarinnar. Þrælahaldið heldur áfram að varpa skugga yfir þjóðlífið allt.

Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.