Ódysseifskviða 14 - Heim til Íþöku
Hér les umsjónarmaður 13. kafla Ódysseifskviðu. Alkinos konungur Fæeka hjálpa Ódysseifi að komast loksins, loksins heim til Íþöku. Hann er borinn sofandi í land en þá birtist Aþena…
Þetta er framhald af tveimur þáttum um páska þar sem fjallað var um trúarbrögð sem spámaðurinn Zaraþústra í Baktríu stóð á bak við um árið 1200 fyrir upphaf tímatals okkar. Persar tóku þessi trúarbrögð upp á sína arma og þegar þeir lögðu undir sig Babýlon á 6. öld FT höfðu þau djúp og varanleg áhrif á trúarbrögð Gyðinga sem þangað höfðu verið herleiddir.

Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.