Ódysseifskviða 14 - Heim til Íþöku
Hér les umsjónarmaður 13. kafla Ódysseifskviðu. Alkinos konungur Fæeka hjálpa Ódysseifi að komast loksins, loksins heim til Íþöku. Hann er borinn sofandi í land en þá birtist Aþena…
Öðru sinni er borið niður í ævisögu Jónu Sigríðar Jónsdóttur (1899-1997) sem jafnan var frá fullorðinsárum kölluð Trippa-Sigga. Nú segir frá unglingsárum hennar á Snæfellsnesi en síðan vist hennar í Reykjavík, þar sem kunni vel við sig en varð líka fyrir hinni dýpstu sorg.

Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.