Ódysseifskviða 14 - Heim til Íþöku
Hér les umsjónarmaður 13. kafla Ódysseifskviðu. Alkinos konungur Fæeka hjálpa Ódysseifi að komast loksins, loksins heim til Íþöku. Hann er borinn sofandi í land en þá birtist Aþena…
Hér segir áfram frá tilraunum Ódysseifs og manna hans til þess að komast heimleiðis. Nú liggur leiðin meðal annars til eyjar þar sem hin mjög svo viðsjála Kirka býr og reynist félögum Ódysseifs mjög þung í skauti en hann reynir að snúa vörn í sókn með hjálp sendiguðsins Hermesar.

Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.