Vínill vikunnar

Lög frá liðnum árum - fyrri hluti (1960)

Víniplata vikunnar er safnplatan Lög frá liðnum árum sem gefin var út árið 1960 og inniheldur samtals 27 lög á tveimur vínilplötum. Hún inniheldur safn dægurlaga sem plötuútgáfa Tages Ammendrup, Íslenskir tónar, sendi frá sér á árunum milli 1950 og 60, auk laga sem ekki höfðu áður komið út.

Í þessum þætti verður fyrri plötunni af tveimur gerð skil.

Fyrsta lagið á hlið A er Lapi, listamannakrá í Flórens, lag sem höfundurinn Jakob Hafstein flytur sjálfur en ljóðið er eftir Davíð Stefánsson. Hljómsveit Carls Billich leikur undir. Því næst heyrum við Ingibjörgu Þorbergs og Marz-bræður flytja Heillandi vor, eftir Óðin G. Þórarinsson við texta Þorsteins Sveinssonar. Hljómsveit Jans Morávek leikur. Þriðja lagið er Maja litla eftir Ása í Bæ. Erling Ágústsson syngur með hljómsveit Eyþórs Þorlákssonar og kór. Kátt er um jólin er það fjórða, lag og texti eftir bræðurna Jón Múla og Jónas Árnasyni en lagið er úr gamanleik þeirra Deleríum búbónis. Sigríður Hagalín syngur með kór og hljómsveit Carls Billich. Fimmta lagið er lagið Útþrá eftir Jóhann Eymundsson og Jenna Jónsson. Það syngur Alfreð Clausen með hljómsveit Jans Morávek. Sjötta og síðasta lagið á fyrstu hliðinni er Réttarsamba, lag Gunnars Guðjónssonar og texti Lofts Guðmundssonar. Soffía Karlsdóttir og Tígulkvartettinn með hljómsveit Jans Morávek flytja.

Á B-hlið plötunnar eru lögin Komdu í kvöld eftir Jón Sigurðsson, sem stórsöngvarinn Ragnar Bjarnason flytur með miklum bravúr ásamt hljómsveit Birgers Arudzen. Næst er Ástavísa hestamannsins, lag eftir Carl Billich og texti eftir Sverri Haraldsson. Sigurður Ólafsson syngur með hljómsveit lagahöfundarins Carls Billich. Þriðja lagið er Gamla gatan eftir Oddgeir Kristjánsson og Ása í Bæ. Helena Eyjólfsdóttir syngur með Atlantic kvartettinum. Fjórða lagið heitir Á vorin og flytur höfundurinn, Svavar Lárusson, það sjálfur við eigin undirleik. Fimmta lagið er Einsi kaldi úr Eyjunum, lag og texti eftir Jón Sigurðsson. Óðinn Valdimarsson flytur með kór og Atlantic kvartettinum. Lokalagið er síðan Mikið var gaman því eftir Steingrím M. Sigfússon, Skafti Ólafsson syngur með hljómsveit Gunnars Sveins.

Umsjón: Stefán Eiríksson.

Frumflutt

16. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Vínill vikunnar

Vínill vikunnar

Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.

Þættir

,