Vínill vikunnar þessa viku, og næstu reyndar líka, er helgaður 50 ára afmælisplötu Félags íslenskra hljómlistarmanna sem kom út síðla árs 1982.
Félag íslenskra hljómlistarmanna, FÍH, er stéttarfélag tónlistarmanna, stofnað að frumkvæði þeirra Bjarna Böðvarssonar og Þórhalls Árnasonar 28. febrúar 1932. Í febrúar 1982 var fimmtíu ára afmæli félagsins fagnað með viku tónlistarhátíð þar sem íslensk tónlistarsaga var rifjuð upp á fjölda tónleika víða á Stór-Reykjavíkursvæðinu, á skemmtistöðum og sjúkrastofnunum. Hátíðin var tekin upp og gefin út á tvöfaldri hljómplötu seinna á afmælisárinu.
Í dag hlýðum við á fyrri plötu albúmsins, A og B hlið, sem segja má að spanni tónlist frá upphafi tuttugustu aldar vel fram á sjötta áratug aldarinnar, en í næstu viku bregðum við seinni plötunni undir nálina og hlýðum á tónlist frá sjöunda og áttunda áratugnum.
A-hlið fyrri plötu afmælisútgáfunnar hefst með laginu Á persnesku markaðstorgi í flutningi útvarpshljómsveitar í anda Þórarins Guðmundssonar. Þá leikur danshljómsveit í anda Bjarna Böðvarssonar Little Brown Jug, Hljómsveit Jónatans Ólafssonar flytur valsasyrpu, Hljómsveit Aage Lorange Tanze Möchte Ich, Dixieland-hljómsveit Árna Ísleifssonar At a Georgia Camp Meeting, Hljómsveit Grettis Björnssonar If I Had You og Haukur Morthens og hljómsveit Fjörlaufa smára. Lagið Komdu fljótt, kæra vor sem Ásgeir Sverrisson og hljómsveit fluttu komst ekki fyrir vegna plássleysis.
B-hliðin hefst með því að K.K. sextettinn flytur Isn't It Romantic og Hyllingu no 1 (Sunday Kind Of Love), Hljómsveit Braga Hlíðberg Bændapolka, Árni Elfar og hljómsveit East Of The Sun, Hljómsveit Björns R. Einarssonar Chi, Baba, Chi Baba, Hljómsveit Karls Lilliendahl Manstu vinur, Sextett Ólafs Gauks lögin Segðu ekki nei, Bjössi á Hól og Þú ert minn súkkulaðís og Ragnar Bjarnason og Jón Sigurðsson syngja Úti í Hamborg. Lokalag plötunnar, Vor við flóann með Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar, komst ekki fyrir vegna plássleysis.