Vínill vikunnar

Please Please Me með Beatles

Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.

Plata vikunnar er Please Plese Me með Beatles, sem gefin var út 1963. Þetta er fyrsta stóra plata Bítlanna, plata sem markaði tímamót. Kynslóðin sem fæddist á fyrsta áratugnum eftir síðari heimsstyrjöldinni lauk var um margt ólík fyrri kynslóðum þegar hún komst á unglingsár. Meðal þeirra er svokölluð 68 kynslóð, unga fólkið sem gerði uppreisn gegn veraldlegum gildum, efnishyggju og því sem eldra fólki þótti eftirsóknarvert.

Fyrir þessu fólki er dægurtónlistin fyrir og eftir Bítlana. Allt eldra virtist skyndilega úrelt, Paul Anka, Bill Haley, jafnvel kóngurinn Elvis Presley féllu úr tísku. Í dægurtónlist rann árið 0 upp klukkan tíu morgni enskum tíma mánudaginn 11. febrúar 1963 þegar fjórir ungir menn frá Liverpool byrjuðu taka upp fyrstu stóru plötuna í Abbey Road-stúdíóinu í Lundúnum. Þeir áttu eftir leggja heiminn fótum sér, þó þeir væru kornungir –aðeins um tvítugt–voru John Lennon, Paul McCartney, George Harrisson og Ringo Starr engir viðvaningar. Lennon og McCartney höfðu leikið saman frá því 1957 þegar McCartney var aðeins fimmtán ára. Hann fæddist 1942, Lennon 1940. George Harrisson bættist seinna við en Ringo Starr var nýgenginn til liðs við hina þegar stóra platan Please please me var hljóðrituð. Það eru 14 lög á þessari fyrstu stóru plötu Bítlanna, upphaf og endir eru með látum, frá I saw her standing there Twist and shout.

Hlið 1

1. I Saw Her Standing There

2. Misery

3. Chains

4. Boys

6. Ask Me Why

7. Please Please Me

Hlið 2

1. Love Me Do

2. P.S. I Love You

3. Baby It's You

4. Do You Want To Know a Secret

5. A Taste of Honey

6. There's a Please

7. Twist and Shout

Umsjón: Bogi Ágústsson.

Birt

3. sept. 2021

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Vínill vikunnar

Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.

Þættir

,