Rattlesnakes - Lloyd Cole and the Commotions
Vínill vikunnar í þetta sinn er hljómplatan Rattlesnakes með hljómsveitinni Lloyd Cole and the Commotions sem kom út í október 1984. Hljómsveitin starfaði frá 1982-1989 og náði talsverðum…
Vínill vikunnar að þessu sinni er platan Verst af öllu með Ríó Tríói, sem kom út árið 1976. Á plötunni eru tólf lög, tíu erlend og tvö íslensk, sem öll eru með íslenskum textum Jónasar Friðriks Guðnasonar. Platan sló í gegn á sínum tíma, seldist afar vel og fékk heilt yfir góða dóma í blöðum.
A-hlið: Ég vil elska, Verst af öllu, Eina nótt, Siggi Jóns, Einn á báti og Allir eru að gera það.
B-hlið: Óli Jó, Ungfrúin dansar, Bimbó, Týndi maðurinn, Stebbi og Lína og Kvennaskólapía.
Umsjón: Stefán Eiríksson.

Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.

