Leikin eru lög eftir dægurlagahöfunda sem hafa annarsvegar verið samin sem dans- og dægurlög en síðan hlotið útbreiðslu sem kórlög, kvartettasöngvar eða einsöngslög. Hinsvegar eru leikin lög eftir dægurlagahöfunda sem eru sérstaklega hugsuð af þeirra hálfu sem einsöngslög eða kórlög. Lögin eru eftir Gunnar Þórðarson, Magnús Kjartansson, Jóhann G. Jóhannsson, Jón Jónsson frá Hvanná, Jónas Jónasson, Hörð G. Ólafsson, Geirmund Valtýsson, bræðurna Jónas og Jón Múla Árnasyni, Spilverk þjóðanna og Finn Torfa Stefánsson.
Ennfremur er endurflutt erindi sem Magnús Thoroddsen, þáverandi borgardómari og formaður Stúdentafélags Reykjavíkur, hélt 1. desember 1969. Hann fjallar um sögu félagsins og helstu áhrifamenn félagsins frá stofnun þess, auk þess sem hann ræðir það sem efst er á baugi árið 1969, s.s. virkjunarmál, stóriðjumál, inngönguna í EFTA o.fl.