Leikin er tónlist með Erlu Þorsteinsdóttur, stúlkunni með lævirkjaröddina og endurfluttir kaflar úr tveimur gömlum táknmálsþáttum úr safninu.
Björn Th. Björnsson ræðir við Guðmund Guðmundsson myndlistarmann sem var nýkominn frá París og kallaði sig Ferró (síðar Erró) um stefnur og strauma í myndlistarlífi Parísarbúa 1960. Sveinn Jónsson bóndi á Egilsstöðum flytur erindi og ræðir um raforkumál Austfirðinga.