Velkomin í Helgarútgáfuna á Rás 2. Að venju þá var púlsinn tekinn á mannlífinu og menningunni þessa helgina. Það var auðvitað sjómannadagshelgin og við fengum smá kvóta af þeirri stemningu. Við hringdum nefnilega til Suðureyrar við Súgandafjörð þar sem tónlistarkonan Katla Vigdís Vernharðsdóttir stóð í ströngu við skipulag sjómannadags-dagskrár þar í bæ.
Svo var það dagskrárliðurinn Svona er sumarið en þar fengum við hann Greip Gíslason, kunnan verkefnastjóra og ráðgjafa, til þess að segja okkur frá sínu sumri komandi. Það stóð mikið til hjá honum enda kammertónlistarhátíðin Við Djúpið á næsta leyti og fengum við nasasjón á herlegheitum þar.
Loks leit við hann Bogomil Font í heimsókn og sagði hann hlustendum aðeins af þessum lögum sem hafa komið út síðustu misserin frá Bogomil og greiningardeildinni en eru bráðskemmtileg. Kom á daginn að þau er flest svör við vandamálum hvers konar í kærleiks- og kalypsóbúningi.
Hér er svo lagalistinn:
Frá kl. 12:45
Maus - 90 kr. perla.
Lifun - Einstök ást.
KK og Maggi Eiríks, Magnús Eiríksson, Kristján Kristjánsson Tónlistarm. - Sjómenn íslenskir erum við.
GLASS ANIMALS - Heat Waves.
THE DOORS - Hello, I Love You.
Janelle Monae - Make Me Feel.
RADIOHEAD - No Surprises.
Vampire Weekend - This Life.
Cell 7 - Nightsky.
Greiningardeildin, Bogomil Font - Sjóddu frekar egg.
Greiningardeildin, Bogomil Font - Þú trumpar ekki ástina.
THE CLASH - Train In Vain.
Daði Freyr Pétursson - I don't wanna talk.
THE CARDIGANS - Lovefool.
SYKUR - Reykjavík.
Mammaðín - Frekjukast.
Frá kl. 14:00
HJALTALÍN - Sjómannavalsinn.
Giant Robot - Public = Shopping.
Richardson, Sorcha - Don't talk about it.
Páll Óskar Hjálmtýsson, Benni Hemm Hemm - Allt í lagi.
Retro Stefson - Minning.
REGGAE ON ICE - Kyrrlátt Kvöld.
BILLIE EILISH - Lunch.
Frá kl. 15:00:
MAGNÚS ÞÓR & JÓNAS SIGURÐSSON - Ef ég gæti hugsana minna
THE CLASH - Should I Stay Or Should I Go.
CELEBS - Rökkrið Rænir Æðruleysi.
Ragga Holm, Júlí Heiðar Halldórsson, Ragnhildur Jónasdóttir - Líður vel.
Móar - Bræðralag.
Wiseguys, The, - Caribbean breeze.
KYLIE MINOGUE - Can't Get You Out Of My Head.
ASH - Oh Yeah.
Bee Gees - Nights On Broadway.
Polo and Pan - Disco nap (feat. Metronomy).
IRENE CARA - Flashdance...What A Feeling.