• 00:34:21María Hrund og Jakob í Meðmælasúpu
  • 01:49:42Haukur á Græna hattinum á línunni

Helgarútgáfan

Jakob á Jómfrúnni og María Hrund á Móðurskipinu í Meðmælasúpu

Helgarútgáfan var á viðburðavaktinni eins og endranær, skrunað var yfir allt það helsta sem var á seyði þessa helgina en auki heyrðum við í vöskum viðburðahaldara sem á tuttugu og þremur árum hefur haldið vel yfir tvö þúsund tónleika á tónleikastað sínum, Græna hattinum. Geri aðrir betur! Þetta er vitaskuld hann Haukur Tryggvason sem stendur sína öflugu vakt þar og hefur gert í þennan langa tíma.

Góðir gestir Meðmælasúpunnar voru þessu sinni þau Jakob Einar Jakobsson vert á Jómfrúnni og María Hrund Marinósdóttir umboðsmaður hjá Móðurskipinu. Þau nefndu það helsta sem upp kom í hugann þegar spurt var það besta í sjónvarpi eða kvikmyndum, bókum, hlaðvarpi, hreyfingu og jákvæðum upplifunum úr eldhúsinu. Það stóð ekki á svörum og margt sem hægt var japla á úr súpu dagsins.

Með tilkomu þorrans var hugað þjóðlegum tónum í tónlistinni og rannsóknarspurningu hent fram til tryggra hlustenda: Ef þið mættuð eingöngu spila eitt lag til kynna íslenska tónlist út a við, hvaða lag yrði fyrir valinu? Yrði þetta Bubbi Morthens, Bríet, Stuðmenn, Naglbítar, Brimkló, Todmobile, Hljómar, eða Hjálmar, Floni eða Flosi Ólafs, Kolrössur, Alaska 1867, Mannakorn eða mammaðín?

Svona endaði þessi líka fíni lagalisti:

Frá kl. 1245:

ÞURSAFLOKKURINN - Nútíminn

SPILVERK ÞJÓÐANNA - Söngur dýranna í Straumsvík

JÓIPÉ X KRÓLI - Í átt tunglinu

HJÁLMAR - Upp í sveit

PIXIES - Here Comes Your Man

OF MONSTERS & MEN - Little Talks

SÍÐAN SKEIN SÓL - Vertu þú sjálfur

EYJÓLFUR KRISTJÁNSSON - Ég lifi í draumi

Frá kl. 14:05:

TRABANT - Nasty Boy

EDDA HEIÐRÚN BACHMANN - Önnur sjónarmið

TAME IMPALA - Dracula

KALEO - Bloodline

GUITAR ISLANCIO - Þorraþræll

ROYEL OTIS - Moody

UNA TORFA - Í löngu máli

PÁLL ÓSKAR OG BENNI HEMM HEMM - Allt í lagi

HJÁLMAR - Vor

BAGGALÚTUR - Bildudals grænar baunir

Frá kl. 15:05

LAUFEY - Mr. Eclectic

JÓHANN G. JÓHANNSSON - Don't Try To Fool Me

BRIMKLÓ - Ég mun aldrei gleyma þér

TODMOBILE - Stelpurokk

TAYLOR SWIFT - The Fate of Ophelia

BJÖRK - Triumph of a heart

MANNAKORN - Einhversstaðar einhverntímann aftur

STUÐMENN - Út á stoppistöð

UNUN - Sumarstúlkublús

PÁLMI GUNNARSSON - Þitt fyrsta bros

Frumflutt

24. jan. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Helgarútgáfan

Helgarútgáfan slær taktinn með þjóðinni á laugardögum. Kristján Freyr setur puttann á púlsinn, skrunar yfir allt það skemmtilega sem er á sveimi í menningu og mannlífi, gestir mæta með margs konar meðmæli og taktviss topptónlist fær hljóma.

Þættir

,