• 00:41:50Hilmar Guðjóns og Anna Margrét í Meðmælasúpu
  • 01:55:44Guðmundur Sigfússon um Kommablótið

Helgarútgáfan

Hilmar Guðjóns og Anna Magga í Meðmælasúpu, Kommablótið og næntís!

Helgarútgáfan rann ljúflega af stað hádegisfréttum loknum. Þessi líka þrælfíni síðasti laugardagur janúarmánaðar sem mætti okkur og vorið nálgast óðfluga. Febrúar heilsar á morgun og það gengur vel þreyja þorrann. Væntanlega fjölmörg sem voru á leið á þorrablót þetta kvöldið.

Við vorum á viðburðavaktinni, hentum okkur á hundavaði yfir það helsta sem var á seyði og hringdum austur í Neskaupstað. Þar var fólk í óða önn undirbúa þorrablót og ekki bara eitthvað þorrablót heldur skemmtilegasta þorrablót landsins segja mörg - nefnilega Kommablótið sem haldið var upp á þetta kvöldið í 60. sinn. Einn af skipuleggjendum, Guðmundur Sigfússon var á línunni.

Svo mættu þau Anna Margrét Káradóttir söng-, leikkona og skemmtikraftur og Hilmar Guðjónsson leikari og skemmtikraftur til okkar með fulla vasa af meðmælum um hitt og þetta í hinni vinsælu Meðmælasúpu! Þar fórum við úr leikhúsum borgarinnar í djassinn, Tolstoj, Tómas Jónsson, Dönsku konuna, umami-salt og allt hvað eina.

endingu var það tónlistin sem spilaði stóra rullu! Í bland við allt það vinsælasta á Rás 2 þessi misserin var tónlist þáttarins valin mestan partinn af hlustendum en óskað var eftir tillögum um dæmi um þá tónlist sem best gæti lýst tíunda áratuginum, sumsé níutíu og eitthvað - eða næntís! Ef þú þyrftir útskýra 90’s tónlist með einu lagi yrði það Fugees, Spice Girls, Björk eða Blur? Hver væri þín tillaga?

Frá 12:45

PLÁHNETAN - Funheitur

COOLIO - Gangsta's Paradise

TODMOBILE - Tryllt

RICHARD SCOBIE - Hate to see you cry

SOPHIE ELLIS BEXTOR - Murder On The Dancefloor

BRYAN ADAMS - Have you ever really loved a woman?

MIKE FLOWERS POPS - Wonderwall

ANTONIO BANDERAS FT. LOS LOBOS - El Mariachi

DAÐI FREYR - I don't wanna talk

TRINE DYRHOLM - Smuk som et stjerneskud

Frá kl. 14:05

HJÁLMAR - Upp í sveit

THE BREEDERS - Cannonball

PAUL SIMON - You Can Call Me Al

BJÖRK - Big Time Sensuality

HARRY STYLES - Watermelon Sugar

U2 - One

NÝDÖNSK - Frelsið

Frá kl. 15:05

BAGGALÚTUR - Bildudals grænar baunir

WHITE TOWN - Your Woman

BABYLON ZOO - Spaceman

PORTUGAL. THE MAN - Tanana

TLC - Waterfalls

SPOON - Taboo

MACY GRAY - I Try

PRODIGY - Breathe

BRITNEY SPEARS - Baby One More Time

RAGE AGAINST THE MACHINE - Killing in the name of

Frumflutt

31. jan. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Helgarútgáfan

Helgarútgáfan slær taktinn með þjóðinni á laugardögum. Kristján Freyr setur puttann á púlsinn, skrunar yfir allt það skemmtilega sem er á sveimi í menningu og mannlífi, gestir mæta með margs konar meðmæli og taktviss topptónlist fær hljóma.

Þættir

,