Helgarútgáfan fór á flakk þennan laugardaginn og kom sér fyrir á Iceland Parliament hótelinu við Austurvöll. Þangað heimsóttu Helgarútgáfuna góðir gestir gestir og sannkölluð sparitónlist frá Iceland Airwaves hátíðum fyrri ára fékk að hljóma.
Meðmælasúpan var vitaskuld á sínum stað; leikararnir og tónlistarfólkið Hallgrímur Ólafsson sem oft er kallaður Halli Melló og Katrín Halldóra Sigurðardóttir mætu í súpuna og bættu fáeinum frábærum meðmælum í annars afar bragðmikinn súpugrunn.
Kristján náði að krækja í einn stórgóðan dúett sem kom fram á Airwaves hátíðinni í ár, fengum að heyra af þeirra upplifun af hátíðinni og hvað væri fram undan. Það voru þau Kusk og Óviti eða Kolbrún Óskarsdóttir og Hrannar Máni Ólafsson sem litu við í laugardagsspjall.
Loks áður en yfir lauk þá fengum við hann Ísleif Þórhallsson í innlit en hann ásamt sínu fólki hjá Senu Live hefur haft veg og vanda á Airwaves hátíðinni síðan 2018 og við spurðum hann spjörunum úr.
Tónlistin var með Airwaves-áhrifum í bland við annað gúrmelaði:
Frá kl. 12:45
RETRO STEFSON - Glow
FLORENCE AND THE MACHINE - You've Got The Love
TRABANT - The One
KUSK & ÓVITI - Elsku vinur
HERRA HNETUSMJÖR - Ómótstæðileg
SINEAD O CONNOR - Mandinka
BRÍET - Sweet escape
SVÁFNIR SIG - Malbiksvísur
HELGI JÚLÍUS - Einelti (Egill Ólafsson og Stefanía Svavars)
PÁLL ÓSKAR OG BENNI HEMM HEMM - Eitt af blómunum
Frá kl. 14:00
HLJÓMSVEITIN EVA - Ást
ROYEL OTIS - Who's your boyfriend
KUSK OG ÓVITI - Augnaráð
GUGUSAR - Reykjavíkurkvöld
LOLA YOUNG - One Thing
KÁRI EGILSSON - Midnight Sky
THE MONKEES - I'm A Believer
COLDPLAY - Talk
Frá kl. 15:00
BUFF & Á MÓTI SÓL - Mamma gefðu mér grásleppu
OF MONSTERS AND MEN - Tuna In a Can
RAVYN LENAE - Love Me Not
MÁNI ORRASON - Fed All My Days
KENYA GRACE - Strangers
CYBER - I don't wanna walk this earth
BLOODGROUP - Hips Again
HOT CHIP - Over And Over