• 00:29:50Sigga Soffía og Davíð Þór í Meðmælasúpu

Helgarútgáfan

Sigga Soffía og Davíð Þór í Meðmælasúpu og lög sem fjalla um veðrið

„Það verður alvöru inniveður um helgina“ hafði veðurfræðingurinn Siggi stormur látið hafa eftir sér fyrir þessa helgi og þess vegna var stíla inn á notalegheit í tónlistinni og öðru í Helgarútgáfu dagsins. Þetta var svona Rás 2 í útvarpinu, litabók og litir, Sudoku, krossgátur, kakóbolli eða te, kaffi ... og gott slaka á.

Fastur liður í Helgarútgáfunni er Meðmælasúpan góða og þau Davíð Þór Katrínarson leikari og Sigga Soffía Níelsdóttir dansari mættu fersk og sögðu frá sínum verkefnum og mæltu með ýmsu góðu úr eldhúsinu auk framúrskarandi menningarefnis.

Og í framhaldi af blessuðu veðrinu var boðið upp á samkvæmisleik til þess finna skemmtileg lög sem fjalla um veðrið. Hlustendur létu ekki sitt eftir liggja og lögðu til dúndrandi tillögur. Eins og sjá má:

Frá kl. 12:45

ÚLFUR ÚLFUR - Sumarið

CROWDED HOUSE - Weather With You

RAKEL, HALLDÓR ELDJÁRN - Hér

BOGOMIL FONT OG FLÍS - Veðurfræðingar

BLAZROCA OG ÁSGEIR TRAUSTI - Hvítir skór

TRYGGVI - Allra veðra von

BRIMBROT - Kling Klang

Frá kl. 14:00

SNORRI HELGA, BRÍET - Mexico

VALDIMAR GUÐMUNDSSON & MEMFISMAFÍAN - Það styttir alltaf upp

STUÐMENN - Út í veður og vind

THE WEATHER GIRLS - It's Raining Men

CORNERSHOP - Brimful of Asha (Norman Cook Remix)

ALORIAN, ALASKA 1867, GROSS - Týnda kynslóðin

FRIÐRIK DÓR - Þessi kjóll

R.E.M. - So. Central Rain (I'm Sorry)

DIABOLUS IN MUSICA - Sautján stig og sól

BLACK KEYS - Mi Tormenta

Frá kl. 15:00

PÁLL ÓSKAR - ég við róður minn

NÝDÖNSK - Þá kemur þú

GRAFÍK - Húsið og ég

WILL SMITH - Miami

ECHO AND THE BUNNYMEN - Stormy Weather

BIRNIR, TATJANA - Efsta hæð

ARETHA FRANKLIN, GEORGE MICHAEL - I knew you were waiting (for me)

KARL ÖRVARSSON - 1700 vindstig

JET BLACK JOE - Rain

BOGOMIL FONT - Á skíðum

LYKKE LI - I Follow Rivers

KATRINA AND THE WAVES - Walking On Sunshine

Birt

7. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Helgarútgáfan

Helgarútgáfan slær taktinn með þjóðinni á laugardögum. Kristján Freyr setur puttann á púlsinn, skrunar yfir allt það skemmtilega sem er á sveimi í menningu og mannlífi, gestir mæta með margs konar meðmæli og taktviss topptónlist fær hljóma.

Þættir

,