Helgarútgáfan heilsaði frá Ísafirði þennan daginn í rjómablíðu á hinum rómaða veitingastað Húsinu sem tekur á móti vegfarendum sem keyra inn á Eyri við Skutulsfjörð. Á Húsið mætti góður gestur, Tinna Ólafsdóttir sem gengt hefur stöðu upplýsingafulltrúa Ísafjarðarbæjar síðustu ár en söðlaði um á dögunum og réð sig til menningarhússins Edinborgarhússins hér í bæ. Við spurðum Tinnu um allt hið öfluga menningarlíf á Ísafirði og nágrenni og heyrðum ögn af því hvernig páskarnir yrðu.
Þau Þórunn Arna Kristjánsdóttir leikkona og leikstjóri og Pétur Ernir Svavarsson læknanemi og leikari litu við í Meðmælasúpu og mættu með troðfulla vasa af frábærum meðmælum. Við skoðuðum menninguna og mannlífið og svo var það tónlistin! Á ferð okkar vestur í vikunni urðu ýmis dýr á vegi okkar. Því var tónlistin öll eitthvað tengd hinum og þessum dýrum.
ÚLFUR ÚLFUR - Brennum allt
CURE - The Love Cats
HELGI BJÖRNSSON - Allt ljómar
XXX Rottweiler hundar - Hí á þig
KLARA EINARS - Kominn heim
THE BEATLES - I Am the Walrus
STUÐMENN - Söngur dýranna í Týról
DONNA SUMMER - Hot stuff
BRIM - Tvöfaldur Hemmi í töfrasóda
GLASS ANIMALS - Heat Waves
GREIFARNIR - Draumadrottningin
MIIKE SNOW - Animal
THE CRIBS - Never The Same
TODMOBILE - Pöddulagið
KUSK & ÓVITI - Augnaráð
ÝR - Kanínan
A-HA - Cry Wolf
DR. GUNNI OG VINIR HANS - Gubbuhesturinn
SUEDE - Animal Nitrate
THE HOUSEMARTINS - Happy Hour
FLORENCE AND THE MACHINE - Dog Days Are Over
DURAN DURAN - Hungry Like The Wolf
MAXI PRIEST - Wild World
MÖ, DJ SNAKE & MAJOR LAZER - Lean On
PAUL SIMON - Mother And Child Reunion.
DAVID BYRNE - Everybody Laughs
SKRIÐJÖKLAR - Hesturinn
EMILÍANA TORRINI - Animal Games
THE BEATLES - Blackbird