Flugur

Sonus Futurae og Pax Vobis

Dregnar eru fram tvær stuttstkífur, annarsvegar frá árinu 1982 og hinsvegar frá árinu 1984. Tölvupopp hljómsveitin Sonus Futurae, sem var skipuð söngvaranum Jóni Gústafssyni og hljóðgervlaleikurunum Þorsteini Jónssyni og Kristni Rúnari Þórissyni, gerði fyrri plötuna sem fékk nafnið Þeir sletta skyrinu... sem eiga það. Platan inniheldur 6 lög, sem heita Samtök 69, Skyr með rjóma, Myndbandið, Sætar stelpur, Laser og Samstaða. Hin platan heitir Pax Vobis eins og hljómsveitin sem gerði hana. Þeir sem skipuðu þá sveit og spiluðu á þessari 8 laga plötu voru söngvarinn og hljómborðsleikarinn Ásgeir Sæmundsson, gítarleikarinn Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, bassaleikarinn Skúli Sverrisson og trommarinn Steingrímur Óli Sigurðsson. Lögin sem hljóma í þættinum heita Coming My Way, Warfare, I Refill, Living Drum, Somebody Somebodies Affair og Religions. Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Frumflutt

2. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Flugur

Flugur

Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.

Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Þættir

,