Flugur

Ljóðskáld og dægursöngvasmiðir

Leikin eru lög sem hafa verið samin við ljóð ýmissa skálda. Fyrsta lag þáttarins er Þú veist í hjarta þér eftir skáldið og lagasmiðinn Þorstein Valdimarsson. Síðan hljóma nokkur lög við ljóð Guðmundar Böðvarssonar. Það eru lögin Völuvísa eftir Auði Haraldsdóttur og Sigurð Rúnar Jónsson, Rauði steinninn eftir Guðmund Hauk Jónsson, Kyssti mig sól eftir Ása í og Vögguvísa eftir Ingunni Bjarnadóttur. Síðan eru leikin tvö lög við ljóð eftir Böðvar son Guðmundar,en það eru lögin Næturljóð úr Fjörðum og Vöggukvæði róttækrar móður. Þá hljóma lög við tvö ljóð eftir Jakobínu Sigurðardóttur, Hvað tefur þig bróðir? eftir Berg Jón Þórðarson og Fimm börn eftir Ingólf Steinsson. Þessu næst syngur Bergþóra Árnadóttir eigið lag við ljóð Gunnars Dal, sem heitir Hvert afrek bróðir ætlar þú vinna? Síðasta lagið er eftir Tómas R. Einarsson, samið við Næturljóð Ingibjargar Haraldsdóttur. Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Birt

30. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Flugur

Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.

Leikin eru nokkur lög, eftir erlenda og íslenska höfundar, þar sem ljóðaþýðingar Magnús Ásgeirssonar eru í forgrunni. Anna Pálína Árnadóttir flytur Söng Fríðu, sem er líka þekkt undir heitinu Í fyrsta sinn ég þig, Gunnar Guttormsson syngur lög sem heita Mansöngvarinn og Ameríkubréf, Einsöngvarakvartettinn syngur Kvæði um einn kóngsins lausamann, Lónlí blú bojs syngja Laugardagskvöld á Gili, Bubbi Morthens flytur eigin lög við kvæðin Eins og gengur og Bólivar, Páll Óskar Hjálmtýsson syngur Enska manvísu frá 14. öld, Ólafur Þórarinsson syngur eigið lag við kvæðið Kapellan, Sigurboginn flytur lag Sigurðar J. Grétarssonar við kvæðið Regla og Lítið eitt syngja kvæðið Konungurinn í Thule.

Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Þættir

,