Ljóð og söngtextar Einars Más
Leikin eru nokkur lög sem hafa verið samin við ljóð Einars Más Guðmundssonar og líka söngtextar sem hann hefur samið fyrir aðra. Fyrsta lagið er Tregagleði eftir Börk Hrafn Birgisson…
Hjálmar Jónsson, alnafni Bólu Hjálmars og afkomandi hans, hefur samið nokkra söngtexta og sálma. Leikin eru lög þar sem söngtextar hans koma við sögu. Fyrst eru fimm lög eftir Geirmund Valtýsson, Með vaxandi þrá, Lifsdansinn, Látum sönginn hljóma, Alpatwist og Vertu. Þá hljóma erlend lög sem Hjálmar hefur gert íslenska texta við en það eru lögin Lífsgleði, Ég hlusta á hjartað og Þú sem líf af lífi gefur. Kristján Gíslason samdi lagið Endurfundir sem Hjálmar samdi við söngtexta og að síðustu eru þrjú lög eftir Jóhann Helgason sem Hjálmar samdi texta við, en það eru lögin Ég á trú, Mundu mig og Hjartalag. Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.