Ljóð og söngtextar Einars Más
Leikin eru nokkur lög sem hafa verið samin við ljóð Einars Más Guðmundssonar og líka söngtextar sem hann hefur samið fyrir aðra. Fyrsta lagið er Tregagleði eftir Börk Hrafn Birgisson…
Leikin eru lög sem samin hafa verið við ljóð Jóhannesar frá Kötlum. Sigrún Hjálmtýsdóttir syngur Bí bí og blaka, Kammerkórinn syngur Land míns föður, Halldór Kristinsson syngur lögin Lamb í grænu túni og Seppi sat á hól, Kuregej Alexandra og Áslaug Sigurgestsdóttir syngja lag úr Sóleyjarkvæði, Þokkabót flytur Þambara vambara og Er hnígur sól, Árni Johnsen syngur Rauðsendingadans, Pálmi Gunnarsson syngur Heimspeki, Kristjana Arngrímsdóttir syngur Mannsbarnamóðir, Sigrún Hjálmtýsdóttir syngur Þegar ég sigli og Pálmi Sigurhjartarson og Berglind Nanna Ólínudóttir flytja lagið Heimþrá. Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.