Fjórði þátturinn af sex þar sem dregin eru fram lög við kvæði Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi. Að þessu sinni verða eftirfarandi lög fyrir valinu: Maríuvers eftir Pál Ísólfsson sem Rannveig Fríða Bragadóttir syngur, Snert hörpu mína eftir Atla Heimi Sveinsson sem Edda Heiðrún Backman syngur, Þið förumenn jarðar eftir Atla Heimi sem Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir syngur, Gakk hægt eftir Kristjönu Arngrímsdóttir sem hún syngur sjálf, Barnið í þorpinu eftir Bergþóru Árnadóttur sem syngur lagið, Höfðingi smiðjunnar eftir Jóhann Helgason sem Egill Ólafsson syngur, Í musterinu eftir Torfa Ólafsson sem Bergþór Pálsson syngur, Brennið þið vitar eftir Pál Ísólfsson í flutningi Karlakórs Reykjavíkur og Karlakórsins Fóstbræðra, Sjá dagar koma eftir Sigurð Þórðarson sem Gunnar Pálsson syngur með Karlakór Reykjavíkug og Stjörnurnar eftir Þórhall Þorvaldsson sem syngur lagið sjálfur. Umsjón: Jónatan Garðarsson.