Leikin eru lög sem samin hafa verið við ljóð ljóðskálda og hagyrðinga sem eru tengd Hafnarfirði með einum eða öðrum hætti. Böddi Reynis og Kristina Bærendsen syngja Í hangsinu, ljóð eftir Anton Helga Jónsson, en lagið samdi Ingvi Þór Kormáksson. Síðan koma nokkur ljóð eftir Árna Grétar Finnsson. Guðrún Gunnarsdóttir syngur Ómisandi, Ragnheiður Gröndal syngur Allar þínar gjafir, Bubbi Morthens syngur Lífsþor, Jóhanna Linnet syngur Lagið okkar, Eyjólfur Eyjólfsson syngur Haustýn og Margrét Eir syngur Júnínótt. Þessu næst eru tveir söngtextar eftir Hörð Zophaníasson, annarsvegar Tímarnir líða og breytast og hinsvegar Á kvöldin, bæði lögin erlend í flutningi þjóðlagakvartettsins Lítið eitt. Lokalagið heitir Opið þorp samið af meðlimum Diktu við ljóð Kristínar Ómarsdóttur. Umsjón: Jónatan Garðarsson.