Ljóð og söngtextar Einars Más
Leikin eru nokkur lög sem hafa verið samin við ljóð Einars Más Guðmundssonar og líka söngtextar sem hann hefur samið fyrir aðra. Fyrsta lagið er Tregagleði eftir Börk Hrafn Birgisson…
Öll söngljóðin í þættinum eru eftir ljóðskáld. Þetta eru annarsvegar ljóð sem lagahöfundar sóttu í ljóðabækur og hinsvegar söngkvæði sem urðu til eftir að tónhöfundarnir leituðu til ljóðskálda og báðu um söngtexta við lögin sín. Lay Low flytur lögin Horfið og Vonin, Bergþóra Árnadóttir syngur lag sitt Þau gengu tvö, Guðrún Gunnarsdóttir syngur lagið Eilífa tungl, Hljómar flytja lögin Tregagleði og Rokkhundar, Björgvin Halldórsson syngur Enginn er eyland, Egill Ólafsson syngur lagið Ljósvíkingur, Valgeir Guðjónsson syngur lag sitt Uppboð og Sigrún Hjálmtýsdóttir syngur lagið Betlari. Umsjón: Jónatan Garðarsson

Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.