• 00:09:07Hefðarfólk á hjólum
  • 00:09:07Snerting Baltasars Kormáks
  • 00:09:07Þórhildur Sunna Ævarsdóttir um mál Assange

Kastljós

Leyft öllum aldurshópum

Baltasar Kormákur, bifhjólareið og Wikileaks

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður heimsótti nýverið Julian Assange í Belmarsh fangelsið þar sem hann dvelur en hún vinnur að skýrslu um varðhald hans fyrir Evrópuráðsþingið. Snerting, nýjasta kvikmynd Baltasars Kormáks var tekin í Japan og raunar nokkrum löndum til viðbótar. Hann segir tökurnar hafa verið allflóknar í framkvæmd en þess virði því myndin hreyfi með ríkum hætti við áhorfendum. Mótorhjólamenn blása til góðgerðarreiðar á laugardag þar sem keyrt verður frá Granda að Hjartatorgi í miðborginni. Jóhann G. Jóhannsson leikari og bifhjólamaður er meðal skipuleggjenda.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.

Þættir

,