• 00:01:00Kjarasamningar á opinberum og almennum markað
  • 00:14:50Fjarlækningar nú á Íslandi
  • 00:19:51Rut Rebekka og myndlist

Kastljós

Leyft öllum aldurshópum

Kjarasamningar, fjarlækningar, Rut Rebekka

Stórt skref var stigið í síðustu viku þegar kjarasamningur var undirritaður milli Samtaka atvinnulífsins og nokkurra stærstu verkalýðsfélaga landsins. En mikið verk er þó óunnið enda margir samningar enn lausir eða að losna. Rætt við Finnbjörn Hermannsson, forseta ASÍ, og Söndru B. Frank, formann Sjúkraliðafélags Íslands.

Læknarnir Jenný Huld og Ragna Hlín hafa unnið að lausn til að einfalda fjarlækningar á Íslandi, sem gætu stóreflt heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni.

Hjúkrunarfræðingur sem nýtir hverja lausa stund til að mála, þar með talið sem farþegi í bíl og áhorfandi á ballettæfingu. Þannig er Rut Rebekku Sigurjónsdóttur myndlistarkonu rétt lýst en yfirlitssýning yfir 50 ára feril hennar opnaði nýverið á Korpúlfsstöðum.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.

Þættir

,