• 00:00:03Vopnaburður ungmenna
  • 00:19:01Dans Brynju Péturs

Kastljós

Leyft öllum aldurshópum

Vopnaburður ungmenna, Dans Brynju Péturs

Samfélagið er harmi slegið eftir að hin sautján ára Bryndís Klara Birgisdóttir lést eftir að hafa verið stunginn í miðborg Reykjavíkur á Menningarnótt. Skemmtikraftar og áhrifavaldar sem njóta vinsælda hjá yngri kynslóðum hafa látið í sér heyra. Við ræðum við Árna Pál Árnason - Herra Hnetusmjör - sem hvetur ungmenni til að taka höndum saman og mótmæla vopnaburði.

Um 5 prósent grunnskólanema hafa mætt með hníf í skólann samkvæmt Íslensku æskulýðsrannsókninni. Guðmundur Fylkisson lögreglumaður og Kári Sigurðsson, verkefnastjóri Flotans, telja þessar tölur varlega áætlaðar þar sem jaðarhópar, sem líklegastir eru til að bera vopn, taki síst þátt í könnunum. Þeir voru gestir Kastljóss.

Hip hop dansarinn Brynja Pétursdóttir hefur í heil tuttugu ár kennt Íslendingum að bánsa og grúva og það eru mörg hundruð krakkar sem kunna í dag að götudansa hennar vegna. Við hittum hana í tilefni af kennsluafmælinu.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.

Þættir

,