Kastljós

Breytingar á Heiðmörk, Íslendingur í Harvard og Högni Egilsson

Það hefur mikið farið fyrir umræðu um fyrirhugaðar breytingar á einu vinsælasta útivistarsvæði landsins, Heiðmörk. Veitur eru með áform um takmarka aðgang Heiðmörk vegna vatnsverndar og banna bílaumferð á stóru svæði. Skógræktarfélag Reykjavíkur hefur gagnrýnt áformin og segja þau skerða möguleika til útivistar. Gestir Kastljóss eru Auður Kjartansdóttir framkvæmdastjóri Skóræktarfélags Reykjavíkur og Sólrún Kristjánsdóttir framkvæmdastýra Veitna.

Donald Trump Bandaríkjaforseti bannaði fyrir helgi Harvard-háskóla taka við erlendum nemendum. Dómstólar hafa sett bráðabirgðabann á ákvörðunina en í framhaldinu lét forsetinn kné fylgja kviði og fyrirskipaði öllum alríkisstofnunum rifta samningum sínum við skólann. Við ræðum við Gunnhildi Fríðu Hallgrímsdóttur sem er útskrifast frá Harvard.

Tónlistarmaðurinn Högni Egilsson stendur í stórræðum þessi misserin. Hann semur tónlist fyrir kvikmyndir Baltasars Kormáks og flyst í haust búferlum með fjölskyldu sinni til Los Angeles. Við heimsækjum hann í lok þáttar.

Dagskrárliðurinn er textaður.

Frumsýnt

28. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Kastljós

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.

Þættir

,