• 00:00:56Eftirlit með framkvæmdasvæðum
  • 00:21:19Líkaminn er skál

Kastljós

Leyft öllum aldurshópum

Framkvæmdir í þéttbýli, vinnuslysum fjölgar, leikrit upp úr leir

Banaslysum í mannvirkjagerð hefur fjölgað á undanförnum árum og alvarleg slys í byggingageiranum eru hlutfallslega fleiri en í nágrannalöndunum. Þá er ótalin banaslys sem orðið hafa í grennd við framkvæmdasvæði í þéttbýli. Að minnsta kosti þrjú slík slys hafa orðið á undanförnum árum, þar á meðal hinn átta ára gamli Ibrahim Shah sem varð fyrir steypubíl í grennd við vinnusvæði í Hafnarfirði í fyrra en Kastljós ræddi við móður hans fyrir skemmstu. Við töluðum við Björgvin Rafn Sigurðarson, deildarstjóra afnota og eftirlitsdeildar hjá umhverfis- og skipulagssviðs um að hverju þarf að huga þegar byggt er í þéttbýli.

Í framhaldinu komu þær Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir, forstjóri Vinnueftirlitsins, og Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri hjá Samtökum Iðnaðarins, í myndver og ræddu hvað þarf að gera til að efla öryggismenningu í byggingageiranum.

Þegar Helga Arnalds brúðugerðarkona veiktist um árið kynntist hún nýjum efnivið til að vinna með, leir. Það hefur nú þróast í leiksýningu þar sem hún vinnur með leir. Við kynntum okkur sýninguna.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.

Þættir

,