• 00:00:43Líðan barna eftir covid
  • 00:12:38Uppskrift: líf eftir dauðann
  • 00:18:50Ævintýraheimur á Akureyri

Kastljós

Andleg líðan íslenskra ungmenna, líf eftir barnsmissi og ævintýragarður

Umræða um vanlíðan ungmenna og barna, og hörku og ofbeldi í samskiptum þeirra, hefur verið hávær undanförnu. Þetta samsvarar niðurstöðum nýrrar rannsóknar sem unnin var undir forystu Háskólans í Reykjavík á geðheilsu íslenskra ungmenna eftir covid-faraldurinn. Niðurstöðurnar sýna andleg líðan íslenskra ungmenna er ekki enn komin í eðlilegt horf eftir covid. Gestur Kastljóss er Þórhildur Halldórsdóttir, dósent í sálfræði við Háskólann í Reykjavík og klínískur barnasálfræðingur.

Hvernig heldur maður áfram með lífið eftir maður missir það dýrmætasta sem maður á? Í stuttmyndinni Uppskrift: líf eftir dauðann reynir Bergþóra Björnsdóttir svara því hvernig hún náði halda áfram eftir dóttir hennar lést aðeins 16 mánaða. Viktoría Hermannsdóttir settist niður með Bergþóru sem fékk Edduverðlaun fyrir myndina sína í fyrra.

Við Oddeyrargötu á Akureyri er hús sem lætur ekki mikið yfir sér. En við nánari skoðun kemur í ljós ævintýraheimur. Óðinn Svan kíkt í garðinn.

Dagskrárliðurinn er textaður.

Frumsýnt

27. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Kastljós

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.

Þættir

,