Rakel Andrésdóttir var við stjórnvölin í þætti kvöldsins ásamt Kalla og stjórnaði lagavali kvöldsins af mikilli list þar sem Snæi er að sjálfsögðu ennþá staddur í Björgvin (Bergen) en hann mælti sér mót við Móeiði Loftsdóttur, jazztrompetista og meðlim Björgvinsku hljómsveitarinnar Vepsestikk. Þau ræddu um tónlistina og lífið í Björgvin. Eftir það setti Snæbjörn saman lista af djass tónlist sem ungir norskir djass tónlistarmenn mæltu með fyrir honum.