Orð af orði

Maður, man og kona

Orðið maður er óákveðið fornafn í setningum á borð við “ég veit ekki hvað maður á gera“ og vísar vissu marki almennt til fólks en þó mikið til til þess sem talar. Það er eðlilegt þegar orðið hefur sem nafnorð almennu merkinguna manneskja eða fólk.

En þegar orðið hefur ekki þá almennu merkingu heldur bara merkinguna karlmaður, er þá kannski ekki skrítið sumt fólk, líklega frekar það fólk sem ekki er karlkyns, staldri við og noti ef til vill eitthvað annað í þessari fornafnsmerkingu.

minnsta kosti tvö orð hafa bæst í þennan flokk, ef svo mætti kalla, af nafnorðum um fólk sem gegna hlutverki óákveðins fornafns. Það eru kona, og man. Orðið kona þekkja flestir en orðið man er líklega minna þekkt. Það hefur merkinguna 'ófrjáls maður, karl eða kona' en líka merkinguna kona í skáldamáli, og merking er líklega þekktari, og í sérmerkingunni kona eru sumar konur farnar nota það í stað orðsins maður, þegar það er notað sem óákveðið fornafn.

Frumflutt

15. mars 2020

Aðgengilegt til

11. nóv. 2025
Orð af orði

Orð af orði

Þáttur um íslensku og önnur mál. Umsjón: Guðrún Línberg Guðjónsdóttir og Kristján Friðbjörn Sigurðsson.

Þættir

,