Dagur íslenskrar tungu
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum 16. nóvember 1995 að þessi dagur, fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar, yrði framvegis dagur íslenskrar tungu. Honum var hleypt af stokkunum…
Það er rangt að segja: Ég á ekki einn einasta aur. Rétt væri: Ég á ekki einn einasta eyri. Þetta sagði Grímur Helgason í útvarpsþættinum Daglegu máli árið 1956. Hann fjallar líka um sögnina lána; tilvísunarorðið sem; og forsetningarnar að og af. Guðrún og Anna skoða orðin eyrir og aur; og reglur um notkun að og af í ýmsum orðasamböndum með tilliti til erinda Gríms.

Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir