Alvöru gamaldags hjólaskautar eru ekkert endilega gamaldags enda hellingur af fólki sem fer reglulega á hjólaskauta. Ein þeirra er Margrét Hólmgeirsdóttir en hún er ein þeirra sem halda utan um Hjólaskautafélagið og hjólaskautahöllina í Reykjavík. Margréti sagði okkur betur frá hjólaskautalífinu og hjólaskautaati.
Nú stendur yfir svokölluð sjónlýsingarvika á vegum Blindrafélagsins og samstarfsaðila, en alþjóðlegi sjónverndardagurinn er á morgun og dagur hvíta stafsins á sunnudaginn kemur. Við fengum Rósu Maríu Hjörvar varaformann Blindrafélagsins til okkar og fengum að vita meira um sjónlýsingar, mikilvægi þeirra og það sem er um að vera þessa vikuna.
Í gær kom hópur Íslendinga heim eftir afdrifaríka för til Ísrael þar sem áhugaverð skemmtiferð breyttist í ógnvekjandi dvöl á stríðssvæði og hálfgerðan flótta heim. Ingvar Pétur Guðbjörnsson, einn ferðamannanna sem fóru í þessa ferð, settist hjá okkur og sagði okkur af þessari taugatrekkjandi heimferð og lýsti aðstæðum.
Við röktum atburðarás gærdagsins og hvað er líklegt að gerist í framhaldi af afsögn Bjarna Benediktssonar sem fjármálaráðherra. Freyr Gígja Gunnarsson fréttamaður sem hefur legið yfir þessum málum kom til okkar, ræddi stöðuna og sagði okkur frá nýju hlaðvarpi á vegum fréttastofunnar, en í fyrsta þætti fer Freyr yfir þessi mál og hlustendur Morgunútvarpsins að heyra.
Við fengum Davíð O. Arnar yfirlækni hjartalækninga á Landspítalanum og prófessor við Læknadeild Heilbrigðisvísindasviðs HÍ til okkar til að ræða áhugaverð tækifæri í þróun heilbrigðisþjónustu, en heilbrigðisþjónustan stendur frammi fyrir fjölmörgum áskorunum um þessar mundir, m.a. öldrun þjóðarinnar, fjölgun einstaklega með langvinna sjúkdóma, dýrari lyf og tæki og svo ekki sé minnst á manneklu í heilbrigðisgeiranum.
Forsvarsmenn Samtaka um réttindi barna á flótta segjast þekkja fjölmörg dæmi um að börn á grunnskólaaldri séu hér á landi svo mánuðum skiptir án þess að ganga í skóla. Börn eiga rétt á skólavist hér á landi óháð lagalegri stöðu foreldra. Þrjú sveitarfélög koma að þessum málum, en Dagbjört Ásbjörnsdóttir, verkefnastjóri fjölmenningar í grunnskóla- og frístundastarfi hjá Reykjavíkurborg fór yfir stöðuna í þessum málum í borginni.
Tónlist:
Vök - Ég bíð þín.
Mahmood - Soldi.
Björk - Venus as a boy.
Mugison - É dúdda mía.
Toto - Hold the line.
Nýdönsk - Klæddu þig.