• 00:05:22Fugl dagsins
  • 00:10:15Rúnar Sigurjónss. - Fornbílaklúbbur Íslands
  • 00:34:08Ása Baldursd. - hlaðvörp og sjónvarpsefni

Sumarmál

Fornbílaklúbburinn, áhugaverð hlaðvörp og fuglinn

Við heimsóttum formann Fornbílaklúbbs Íslands, Rúnar Sigurjónsson, en hann er ástríðufullur fornbílasafnari og áhugamaður um að halda slíkum bílum við. Sjálfur á hann nokkra bíla og hlut í öðrum og margur myndi nú öfunda hann af bílskúrnum í Breiðholtinu sem er 177 fermetrar að stærð. Fornbílaklúbbur Íslands var stofnaður á fjölmennum fundi í Templarahöllinni 19. maí árið 1977 og Rúnar segir að eftir Covid þurfi að hafa meira fyrir því að meðlimir séu virkir í félaginu.

Ása Baldursdóttir kom í þáttinn í dag og sagði frá því sem er mest spennandi á hlaðvarpsveitum og streymisveitum að hennar mati. Í þættinum í dag fjallaði Ása um eitt skemmtilegasta slúðurhlaðvarp sem hún hefur rekist á sem heitir Normal Gossip, þar sem venjulegt fólk er í aðalhlutverki. Hún sagði svo frá þáttaröðinni Scamanda, sem er hlaðvarp um fáránlegan lygavef ungrar konu sem enn sér ekki fyrir endann á og að lokum segði Ása okkur frá stórskemmtilegri sjónvarpsseríu, White Lotus, þar sem meðal annars einmana alkahólisti og launýginn hótelstjóri koma við sögu.

Svo var fugl dagsins auðvitað á sínum stað eftir fyrsta lag.

Tónlist í þættinum

Venus as a Boy / Björk (Björk Guðmundsdóttir)

I Wish / Stevie Wonder (Stevie Wonder)

Betri bílar, yngri konur / Rúnar Júlíusson (Tom T. Hall og Þorsteinn Eggertsson)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Sumarmál

Ferðalög og útivist. Fróðleikur og skemmtun. Fólk og náttúra. Fugl dagsins, fjöll og firnindi. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar. sumarmal@ruv.is

Þættir

,