Sumarmál

Skiptinám, bakpokaferðalag, Veganesti og fuglinn

Við kynntumst í dag starfsemi AFS á Íslandi, en það eru skiptinemasamtök sem annars vegar senda íslenska unglinga í skiptinám erlendis og hins vegar taka á móti erlendum unglingum, hvaðanæva úr heiminum til Íslands. Í ágúst er væntanlegur hingað til lands hópur skiptinema á vegum AFS og er verið leita fósturfjölskyldum fyrir þau. Katalin Elizabet Karácsony, sem kom hingað frá Ungverjalandi sem skiptinemi fyrir sjö árum, og Björt Þorleifsdóttir, sem hefur tvisvar fengið til sín erlenda skiptinema, komu í þáttinn og sögðu frá.

Við hringdum í Björgu Árnadóttur, sem er á þriggja mánaða bakpokaferðalagi um Evrópu. Við töluðum við hana áður en hún lagði af stað í ferðalagið og fengum við vita hvernig gengur, en hún var stödd í Serbíu eftir talsvert ferðalag meðal annars til Póllands og Rúmeníu.

Páll Ásgeir Ásgeirsson verður með okkur á fimmtudögum í sumar með það sem við köllum Veganestið. Hann ætlar þá deila með okkur reynslu sinni og góðum ráðum af útivist og útiveru. Síðasta fimmtudag gaf hann góð ráð í samband við fyrstu skrefin, fyrir þau sem vilja byrja stunda útivist, en í dag kom hann með góð ráð þegar kemur því ákveða hvert skal haldið.

Svo var fugl dagsins auðvitað á sínum stað eftir fyrsta lag.

Tónlist í þættinum

Í sól og sumaryl / Hljómsveit Ingimars Eydal (Gylfi Ægisson)

Pata pata / Miriam Makeba (J. Rogovoy, Jerry Ragovoy & Miriam Makeba)

Fun, fun, fun / Beach Boys (Brian Wilson & Mike Love)

Riggarobb / Papar (þjóðlag, texti e. Jónas Árnason)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Frumflutt

13. júlí 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Sumarmál

Sumarmál

Ferðalög og útivist. Fróðleikur og skemmtun. Fólk og náttúra. Fugl dagsins, fjöll og firnindi. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar. sumarmal@ruv.is

Þættir

,