Sumarmál

Sólbruni, söfn Árnesinga, Westfjords Adventures og fuglinn

Það er sumar og sólin hefur sem betur fer leikið talsvert við okkur víðast hvar á landinu. Og þó hitastigin séu ekki kannski eins mörg hér á landi og annars staðar þá eru geislar sólarinnar sterkir og talsvert margir sólbrenna ef ekki er farið varlega. Jenna Huld Eysteinsdóttir húðlæknir kom í þáttinn í dag og fræddi okkur um sólbruna, hætturnar og nauðsyn notkunar á sólarvörn.

Safn vikunnar í þetta sinn var Listasafn Árnesinga og Byggðasafn Árnesinga. Við fengum þær Kristínu Scheving, safnstjóri L.Á. og Ragnhildi Elísabetu Sigfúsdóttur, sérfræðing hjá B.Á. til segja okkur frá því hvað er á döfinni hjá þeim, sem er til dæmis Ásgrímsleiðin, söguferð um Flóann á slóðir Ásgríms Jónssonar listmálara.

Við brugðum okkur svo vestur á Patreksfjörð og kynntum okkur ferðaþjónustu þar. Gunnþórunn Bender er stofnandi Westfjords Adventures sem skipuleggur fjölbreyttar ferðir fyrir erlenda og íslenska ferðamenn. Við mæltum okkur mót við hana í vestfirsku sólinni á dögunum.

Fugl dagsins var svo auðvitað á sínum stað.

Tónlist í þættinum:

Dís / Ragnheiður Gröndal (Jóhann Jóhannsson, Bragi Valdimar Skúlason og Ragnar Kjartansson)

For What It?s Worth / Buffalo Springfield (Steven Stills)

Mrs. Cold / Kings of Convenience (Erlend Øye & Eirik Glambek Böe)

Darling Be Home Soon / The Lovin? Spoonful (John B. Sebastian)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON

Frumflutt

17. júlí 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Sumarmál

Sumarmál

Ferðalög og útivist. Fróðleikur og skemmtun. Fólk og náttúra. Fugl dagsins, fjöll og firnindi. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar. sumarmal@ruv.is

Þættir

,