Fátt hefur verið meira rætt í vikunni en þátttöka Íslands Eurovision söngvakeppninni en listamenn og aðrir hafa skorað á RÚV að sniðganga keppnina verði Ísrael með. Við ræddum við Henry Alexander Henrysson, siðfræðing, um sniðgöngu, afstöðu og skyldu í þeim efnum.
Sigrún Yrja Klörudóttir, félagsráðgjafi og ráðgjafi um leik barna hjá Leikvitund, skrifaði grein á Vísi þar sem spurt var hvort börn hafi tíma til að leika sér í nútíma samfélagi og hvað foreldrar geta gert til að ýta undir sjálfstæðan leik barna sinna. Við ræddum þetta betur við Sigrúnu.
Í nýjustu mánaðarskýrslu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu kom fram að alls hafi borist 23 beiðnir um leit að börnum og ungmennum í síðasta mánuði, og það sem af er ári hafi borist um 29 prósent fleiri leitarbeiðnir en bárust að meðaltali á sama tímabili síðastliðin þrjú ár á undan. Við ræddum þessa þróun við Guðmynd Fylkisson, lögreglumann sem hefur um árabil séð um að hafa uppi á týndum börnum.
Við fengum Alexöndru Briem og Gunnar Smára Egilsson til að fara yfir fréttir vikunnar með okkur.
Það fór varla fram hjá nokkrum manni á höfuðborgarsvæðinu þegar að rafmagni sló út á stórum hluta þess í um það bil 20 mínútur síðdegis í gær. Fjöldinn allur af árekstrum varð því umferðarljós urðu óvirk auk þess sem færð og skyggni var slæmt. Atvikið í gær má rekja til eldingar sem laust í Suðurstrandarlínu. Jóhannes Þorleiksson forstöðumaður rafveitu hjá Veitum kom til okkar.
Tónlist:
Noah and the whale - L.I.F.E.G.O.E.S.O.N.
Una Torfadóttir, Baggalútur - Casanova.
Areatha Franklin - I Say A Little Prayer.
Sivan, Troye - One Of Your Girls.
Gus Gus og Birnir- Eða?.
The Dandy Warhols - Bohemian Like You.
Combs, Luke - Fast Car.
Bootsy Collins - I'd Rather Be With You.