Mótmæli hafa farið fram á austurvelli í 26 daga og mótmælendur hafa sofið í tjöldum fyrir utan alþingishúsið í öllum veðrum til að krefjast fjölskyldusameiningar sem þau telja stjórnvöld ekki beita sér nægjanlega fyrir. Ekki er lengur leyfilegt fyrir mótmælendur að sofa í tjöldunum en boðað hefur verið til mótmælafundar klukkan 14.30 í dag. Naji Asar er einn þeirra sem stendur að baki tjaldbúðunum, hann kom til okkar ásamt Kötlu Guðbjörgu Gunnarsdóttur.
Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, var á línunni en hún ætlar að leggja fram vantrauststillögu á matvælaráðherra þegar þing kemur saman að loknu jólahléi í dag.
Breiðfylkingin fundar í dag með Samtökum atvinnulífsins hjá ríkissáttasemjara, en samningaviðræðurnar virtust í uppnámi í síðustu viku vegna ólíkra áherslna um launahækkanir. Við ræddum við Ragnar Þór Ingólfsson, formann VR, um stöðu viðræðna og fundinn í dag.
Erlingur Erlingsson, hernaðarsagnfræðingur og sjálfstætt starfandi sérfræðingur í alþjóða- og öryggismálum, var á línunni hjá okkur eftir átta fréttir, þegar við ræddum um stríð og átök í heiminum og mögulega útbreiðslu þeirra. Það vakti til að mynda töluverða athygli á dögunum þegar yfirmaður sænska hersins sagði að koma þyrfti fólki í skilning um að það geti orðið stríð í Svíþjóð.
Við fórum þá yfir flókna stöðu á þingi sem verður sett í dag við Eirík Bergmann prófessor í stjórnmálafræði.
Tónlist:
Birkir Blær - Thinking Bout You.
KINGS OF CONVENIENCE - Rocky Trail.
UXI - Bridges.
Childish Gambino - Redbone.
Eagles - One Of These Nights.
Jónfrí - Aprílmáni.
Una Torfadóttir - Það sýnir sig (Studio RUV).
Vampire Weekend - Harmony Hall.
UNNSTEINN - Andandi.