Fram og til baka

Ólöf Skaftadóttir og andófið

Hlaðvarpið Komið gott með Ólöfu Skaftadóttur og Kristínu Gunnarsdóttur hefur vakið mikla athygli, enda hlífa þær stöllur fáum og láta gamminn geysa um menn og málefni dagsins. Ólöf kom í fimmu í Fram og til baka og í anda Komið gott talaði hún um fimm atriði í íslensku samfélagi sem henni finnst mæta of lítilli andstöðu. Þetta var tölvustóllinn, Kennarasambandið, íþróttir sem stuðla ótímabærri örorku, meðalmennskan og vínsmökkun.

Svo kíktum við á það sem gerðist á deginum

Frumflutt

4. okt. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Fram og til baka

Fram og til baka

Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.

Þættir

,