Adda Baldurs knattspyrnuhetja
Fimma dagsins er frá Öddu Baldursdóttur knattspyrnukonu og sérfræðingi sem segir okkur af fimm leikjum sem breyttu lífinu. Og þeir leikir eru sannarlega af ýmsum toga, allt frá erfiðu…
Leikkonan Ebba Katrín Finnsdóttir hefur slegið í gegn undanfarið í sjónvarpi og á sviði í Þjóðleikhúsinu, meðal annars í Orð af orði. Nú er hún að leika Hildi í nýjum sjónvarpsþáttum byggðum á bókum Satu Rämö en gaf sér tíma til að koma í Fram og til baka og rabba við Felix um fimm listsýningar sem hafa haft áhrif á líf hennar. Þar kenndi margra grasa.
Í seinni hlutanum verður Söngvakeppnin 2025 til umfjöllunar

Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.