Fram og til baka

Sigsteinn Sigurbergsson leikari og Lotta

Steini í Leikhópnum Lottu heitir fullu nafni Sigsteinn Sigurbergsson og er af miklu íþróttakyni en faðir hans Sigurbergur Sigsteinsson var landsfrægur handknattleiks og knattspyrnumaður og móðir hans Guðrún Hauksdóttir var líka í íþróttum á yngri árum. Það kom því á óvart Steini skyldi sækja í leiklistina og sviðið en þar hefur hann náð frábærum árangri sem einn af máttastólpum leikhópsins vinsæla, Lottu. Fimman hans Steina fjallar um tónlist og talið berst víða, t.d. einelti í skóla, ADHD og starfi með einhverfum strákum, ást pabba hans á allskonar tónlist og ævintýrum á ferðum Lottu um landið.

Frumflutt

28. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Fram og til baka

Fram og til baka

Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.

Þættir

,