Katla Margrét Þorgeirsdóttir stórleikkona
Ein vinsælasta leikkona landsins, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, fer á kostum þessa dagana í verki Maríu Reyndal, Svikasögum. Katla Margrét kom í Fimmu til Felix og sagði af fimm lögum…
Felix fór fram og til baka með hlustendum að morgni sumardagsins fyrsta, spilaði sumartóna, talaði um það sem hægt væri að njóta á deginum og fékk góða gesti í morgunkaffi. Skátarnir Inga Auðbjörg og Sædís Ósk voru fyrsta, svo kom Kristjana Stefánsdóttir tónlistarmaður og síðan hljómsveitin Tab en hana skipa þau Tinna Kristinsdóttir, Arna Rún Ómarsdóttir og Bjartmar Þórðarson. Að lokum hringdi Felix í Sigyn Blöndal hjá Unicef.

Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.