Fram og til baka

Guðrún Kaldal man eftir Gunnari og sjóvinu

Fimman verður hér eftir í seinni hluta Fram og til baka. Guðrún Kaldal framkvæmdastjóri frístundamiðstöðvarinnar Tjarnarinnar er fyrsti gestur í þessari nýju fimmu og rifjaði upp fimm sýningar sem hún tók þátt í á níunda og tíunda áratug síðustu aldar. Þetta var gullöld "sjóvanna" á Hótel Íslandi, Hótel Sögu og Broadway og Guðrún var dansari sem tók þátt í mörgum þessara sýninga og fór meira segja einu sinni í Eurovision í einhverju umdeildasta atriði Eurovision sögunnar.

Svo lítum við á það sem gerðist á deginum 1. mars og spilum tónlist tengda því

Frumflutt

1. mars 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Fram og til baka

Fram og til baka

Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.

Þættir

,