Adda Baldurs knattspyrnuhetja
Fimma dagsins er frá Öddu Baldursdóttur knattspyrnukonu og sérfræðingi sem segir okkur af fimm leikjum sem breyttu lífinu. Og þeir leikir eru sannarlega af ýmsum toga, allt frá erfiðu…
Nýr framkvæmdastjóri Rauða krossins, Gísli Rafn Ólafsson, þekkir hamfarir vel eftir áratuga starf í hjálparstarfi. Hann segir okkur af fimm atburðum sem breyttu lífi hans og sagan berst frá Asíu til karabíska hafsins og Afríku
svo spilum við brot úr lögunum sem keppa í Söngvakeppninni í kvöld.

Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.