Frjó er þriggja til fimm daga listahátíð sem fram fer á Siglufirði um helgina. Þetta er níunda hátíðin sem fram fer og verður bærinn sprúðlandi af listamönnum sem bera uppi spennandi og fjölbreytta dagskrá allt frá upplestrum, gjörningum, myndlistarsýningum og tónleikum. Aðalheiður Sigríður Eysteinsdóttir, myndlistarkona og stofnandi hátíðarinnar sem búsett er í Alþýðuhúsinu þar í bæ og meðal annars hýsir nokkra hátíðargesti segir á fjórða tug listamanna hvaðanæva að taka þátt í hátíðinni og að andrúmsloftið sé oft töfrum gætt því listviðburðirnir séu suðupottur ólíkra listamanna. Við ræddum við Aðalheiði í dag, einnig um listsköpun hennar þar sem hún segist vart geta sofnað á kvöldin fyrir spenningi yfir alltof mörgum hugmyndum sem hún fær.
Í dag kom Ása Baldursdóttir til okkar og í þetta sinn ræðir hún um tvær hlaðvarpsseríur, önnur þar sem trúarsamfélag herjar á ungar mæður að gefa börn sín til ættleiðingar, tvöfalt líf lögreglumanns er afhjúpað í fjórðu þáttaröð Betrayal (Svik) og að lokum verður fjallað um lúxushótel á Taílandi í þriðju þáttaröð White Lotus.
Svo var fugl dagsins auðvitað á sínum stað.
Tónlist í þættinum í dag:
Beatles / love me do
Memories are made of this / Dean Martin
Kveiktu ljós / Karlakórinn Vísir ; Gerhard Schmidt, stjórnandi ; Blandaður kvartett syngur með kórnum (erlent lag, texti Hafliði Guðmundsson)
Seven Bridges Road / The Wilder Blue og Luke Combs
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG HELGA ARNARDÓTTIR