Sumarmál

Páll hermir eftir fuglum,Byggðasafn Skagfirðinga og fugl dagsins

Eins og alltaf byrjum við á Fugli dagsins ....

Páll Albert Magnússoner verða 88 ára og býr yfir leyndum hæfileika sem hann hefur haldið við síðan hann var strákur reka kýr á Hólum í Eyjafjarðarsveit. Við ræddum þennan hæfileika eða þetta áhugamál Páls við hann og hvernig það hefur nýst honum við hinar ýmsu aðstæður.

Byggðasafn Skagfirðinga hefur verið öflugt í sumar og fjölbreytt starfsemi einkennt árið. Sýningar safnsins eru opnar sem fyrr, gamli bærinn í Glaumbæ, auk smærri sýninga í Gilsstofu og Áshúsi, þar sem kaffistofa safnsins er einnig til húsa. Þá heldur safnið Víðimýrarkirkju opinni yfir sumarið. Nýjung sumarsins var samstarfsverkefnið „Safn og sund“, sem býður gestum upp á sameiginlegt tilboð í heimsókn í Glaumbæ og sundlaugar Skagafjarðar. Við heyrðum í henni Berglindi Þorsteinsdóttur safnstjóra .

Birt

17. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Sumarmál

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.

Þættir

,