Dag einn fer hvítur sokkur í þvottavélina og snýst þar, hring eftir hring, þar til hann þýtur inn í dularfulla og litríka ævintýraveröld. Í landi Sokkalabbana búa tilfinningaríkir sokkar í ýmsum litum og með lestri bókanna um Sokkalabbana læra börn að tala um og skilja hinar ýmsu tilfinningar, hvort sem þær eru erfiðar, skrítnar eða skemmtilegar. Höfundurinn er Þorvaldur Davíð Kristjánssson leikari og nú borgarfulltrúi, hann kom í þáttinn og sagði okkur frá Sokkalöbbunum og nýjum sjónvarpsþáttum sem verða væntanlega sýndir á næsta ári.
Safn vikunnar í þetta sinn var Listasafn Reykjavíkur. Sigurður Trausti Traustason, deildarstjóri safneignar kom til okkar og sagði okkur frá því sem er á döfinni á safninu, eða öllu heldur á þeim söfnum sem heyra undir Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhúsinu, Kjarvalsstöðum og Ásmundarsal. Smáborg, háborg - Reykjavík í mynd er sýning sem Sigurður Trausti stýrir á Kjarvalsstöðum þar sem listamenn túlka ásýnd Reykjavíkurborgar eftir mjög ólíkum og fjölbreyttum leiðum. Í Hafnarhúsi stendur nú yfir sýning þýsku listakonunnar Karinar Sander.
Og svo var fugl dagsins auðvitað á sínum stað.
Tónlistin í þættinum:
Pata Pata / Miriam Makeba (Miriam Makeba & Jerry Ragavoy)
Witchita Lineman / Glen Campbell (Glen Campbell)
Sundown / Gordon Lightfoot (Gordon Lightfoot)
You Can’t Make Old Friends / Kenny Rogers og Dolly Parton (Richard Dennison, Don Schlitz, Ryan King & Caitlyn Smith)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR