Rokkland

Höfundur óþekktur - 100 ára kosningaréttur kvenna

Rokkland er 30 ára í ár og af Því tilefni erum við endurflytja vel valda þætti í sumar af þessum 1379 sem eru búnir og þátturinn í dag er frá 21. júní 2015 og er uppistöðu upptaka frá tónleikum sem Kítón stóð fyrir í Hörpu í tilefni af hundrað ára afmæli kosningaréttar kvenna þann 19. júní með hátíðartónleikum.

Á öldum áður þóttu konur ekki hafa hæfileika til iðka tónlist og leifar af þeim hugarburði sitja enn eftir í jafnréttisbaráttunni þar sem kvenhöfundar tónlistar á Íslandi tæplega tíu prósent af útgreiddum stefgjöldum þrátt fyrir mikla grósku í tónlistarlífinu almennt. Íslenskir kvenhöfundar í tónlist eru því í forgrunni þetta kvöldið með sérstökum kynjasnúningi þar sem karlflytjendur syngja lög kvenhöfunda við undirleik og hljómsveitarstjórn kvenna.

Grýlan Ragga Gísla, Dúkkulísurnar og Kolrassa Krókríðandi verða lokum með heljarinnar endurkomu. Kvenhöfundarnir eru meðal annarra Björk Guðmundsdóttir, Emilíana Torrini, Hafdís Huld, Ingibjörg Þorbergs, Lára Rúnars, Ólöf Arnalds, Ragnheiður Gröndal, Sóley, Svala Björgvins, Védís Hervör og Þórunn Antonía.

Flytjendurnir eru meðal annarra Arnór Dan, Björgvin Halldórsson, Bubbi Morthens, Friðrik Ómar, Friðrik Dór, Helgi Björns, Jón Jónsson, Páll Óskar, Raggi Bjarna og Valdimar. Listrænn stjórnandi er Védís Hervör Árnadóttir og framkvæmdastjóri er Diljá Ámundadóttir.

Höfundur óþekktur er titill tónleikanna og er tilvísun í fjöldann allan af vísnakverum og nótnablöðum þar sem höfundur er skráður óþekktur. Þjóð- og mannfræðilegar rannsóknir benda til þess í lang flestum tilfellum um konur ræða en ekki þótti mikilvægt skrásetja þeirra verk til jafns við karlmenn.

Frumflutt

27. júlí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Rokkland

Rokkland

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í áratugi.

Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson

Þættir

,